Samtöl atvinnulífsins

Barátta fyrir bættum árangri í loftslagsmálum - Umhverfismánuður atvinnulífsins 2023

Samtök atvinnulífsins Season 1 Episode 1

Samtöl atvinnulífsins kynna umræðuþáttinn Barátta fyrir bættum árangri í loftslagsmálum . Í þættinum ræðir Lárus Ólafsson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins, við Guðjón Jónsson , fyrrverandi stjórnarformann VSÓ og sérfræðing í umhverfismálum.

Nóvember er umhverfismánuður hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að loftslagsmálum undir yfirskriftinni Á rauðu ljósi?

Hvern þriðjudag og fimmtudag í október njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum. Hápunktur mánaðarins er svo Umhverfisdagur atvinnulífsins 29. nóvember þar sem þema mánaðarins er í hávegum haft og tileinkað Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem gefnir voru út í vor.

sa.is